September Ungbarnapeysa
Stærð: 0-3.mánaða (3-6.mánaða) 6-9.mánaða (9-12.mánaða) 12-18.mánaða
Prjónar: 2,5mm og 3mm hringprjóna 40cm eða 60cm, 3mm sokkaprjóna
Garn: Woolly light frá jord clothing, Knitting for olive merino, Knitting for olive cotton merino
Garnmagn: ca. 100gr (100gr) 100gr, (150gr), 150gr
Prjónfesta: 28lykkjur = 10cm í sléttu prjóni á 3mm prjóna.
Mál á peysu
Ummál: ca. 44cm (49cm) 51cm (54) 56cm
Sídd: ca. 14cm (16cm) 18cm (19cm) 21cm
Ermalengd: ca. 13cm (15cm) 17cm (18cm) 20cm
Peysan er prjónuð ofan frá og niður, fram og til baka. Munstur er prjónað samkvæmt teikningu að ofan í berustykki en að öðru leiti er peysan prjónuð með sléttu prjóni (sétt á réttunni, brugðið á röngunni). Listar eru svo prjónaðir að framanverðu í lokinn. Neðst í uppskriftinni er að finna nánari útskýringar og myndbönd á tæknilegum atriðum.